Thursday, November 02, 2006

Hvað á hún að heita?

[Til ráðalausra nýbakaðra foreldra]

Nkosie er algengt nafn á Xhosa og þýðir einfaldlega Takk.
Beauty tekur þjónustusímtöl hjá Telecom og Princess afgreiðir í bankanum.
Dawn hitti ég útá götu, hún fæddist við sólarupprás.
Foreldrar félaga okkar í Namibíu voru búin að eignast 5 dætur þegar þeim loksins fæddist sonur. Þau nefndu hann Boy.



Namibíski bjórinn Windhoek er nefndur eftir höfuðborg landsins.
Hér sést hvernig dósin fellur inní kvöldlandslag Höfðaborgar


Ef vel er að gáð má sjá "Klink-greftarmann" safna fyrir kvöldverðinum eftir erilsaman dag á ströndinni.




Að lokum nokkrar myndir úr hverfinu okkar, gatan liggur við litla friðsæla Vatnsveitu sem er helst notuð þegar eldur kemur upp í fjallinu.